Chiquita
05.12.2006 18:05:39 / erla

05.12.06

 

 

Váááá hvað ég hata þetta dæmi ! var buin að blogga risa blogg.

allavega..

ætla að byrja á því að óska binna mínum til hamingju með afmælið 1. des ;**

 

En

ég er alveg að fíla það að desember sé kominn og fyrsti í aðventu gengin í garð og svona :D ég sem er jólamanneskja í húð og hár. reyndar finnst mér svo leiðilegt hvað mér hlakkar ekki eins mikið til og þegar ég var yngri. þá var maður alveg að deyja sko ! fá í skóinn og svona. tilfiningin á aðfangadags morgun alveg að springa ! núna er maður bara að vinna á aðfangdag ha! allir að koma í bakaríið á aðfangda dag haha suure :D.
En ég sit hér að hlusta á bublé á tjillinu. var heima í dag að reyna að læra eitthvað. verð að fara að taka mig á í skólanum það held ég nú. en okok :D í kvöld er það svo ljós og baðhúsið.. aðeins að hressa mig við.

en svo er það helgin..

á föstudaginn var skreytidagur í skólanum. Vorum að skreyta stofurnar og svona. okkar stofa alltaf langljótust haha. en olga lilja og einar kennari redduðu þessu og fóru bara og söguðu eitt stykki jóla tré :lol:. svo var einhevr íþróttakeppni í fram heimili. sem hlíðó, hvassó og álftó voru að keppa í brennó ! jee haha. og auðvitað unnum við:D. eftir það fórum ég og hulda uppí kringlu að kaupa 18 vöfflupakka ! og diddi kom svo með okkur að kaupa fleiri í bónus annarstaðar. Fór svo með þetta uppí bakarí og svo heim. Um kvöldið leigðum ég og hulda okkur bara spólu og diddi kom svo í sínu hressasta og joinaði okkur. en hann var ekki lengi að sofna greyið. svo fór hulda út og ég að sofa. stuttur svefn en góður :D. vakna 5 að vinna. í mat komu svo bernie og hulda að sækja vöfflurnar og kræsingar sem ég var buin að taka til. og við skutluðumst með þetta niðrí skóla á jólaföndur. og svo fór ég bara aftur að vinna. eftir vinnu kikti ég niðrí skóla og ég fór með hildi,dísu,andra og binna heim til binna.. við horfðum á fimleika keppni haha:lol:. svo fór ég bara heim að sofa og um kvöldið komu dísa og sólrún til okkar huldu og við gerðum okkur til og tókum taxa í party til frikka.. strákarnir splæstu takk fyrir það ! en þar var bara fínt. margir í stuði :D. svo splæsti ég taxa á okkur stelpurnar í party í vesturbænum. þar sem raggi frændi var og beta líka. og vesturbæjarpíbs. svo kom vinur ragga og maddý að sækja mig og huldu og ragga og skutluðu mér og huldu aftur til frikka. þar var eitthvað fleira fólk komið og svo seinna skutlaði viktor ? og beta mér og huldu í annað party að hitta valda :). svo splæsti einhver gaur á taxa fyrir mig, huldu og valda heim. og var komin heim um 4. Fór svo hress í vinnuna daginn eftir og hef bara aldrei verið svona lengi í lokun.. en svo fór ég í bíó kl. 22:30 á saw 3 með huldu,jóa og alla.
í gær fór ég bara í skólann og vinna eftir skóla og svo píanó og sofa og leti :).


gelluuuur

Erla Bublé


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 18:36:53 / solrun

...

Góða kvöldið :D

Vil tileinka honum Binna mínum þetta blogg, þar sem hann er 17 ára gamall í dag! Óógeðslega mikið til hamingju með afmælið sæti minn:haha:;*<3 :D!

Binni krúsíí:D og ég !

Í dag var enginn skóli, nema eitt próf jú (sem ég btw kunni ekkert í8|), annars bara að skreita stofuna og eitthvað svoleiðis, það var bara ágætt já:P.. Eftir þetta fór öll unglingadeildin í Fram heimilið þar sem var einhver íþróttahátíð. Svo var keppt í brennó og við með 3 lið: 8undi, 9undi og 10undi bekkur (5 strákar og 5 stelpur í hverju liði) og auðvitað rústaði 10undi bekkurinn þessum leik, hvað annað:haha: semsakt íþróttahátíðarmeistarar held ég að það heiti 8)
Það minnir mig á það að um daginn varð 3fl.kvk. í Val haustmótsmeistarar:D algjör meistari ég ;)

Fallega liðið mitt :D

 

Núna er ég hjá Dísu minni og við erum að fara á Rock star tónleikana:D.. Svo er þessi helgi vinnuhelgin mín, semsakt vinna kl 10-18 á morgun og svo 6-14 á sunnudag.. :$

Ætla ekki að hafa þetta blogg lengra, og EKKI GLEYMA AÐ SKOÐA BLOGGIÐ HENNAR HULDU FYRIR NEÐAN :klikk::haha: !!


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 16:16:15 / hulda

30.11.06


Hæhæ

image

síðustu dagar hafa nú ekkert verið neitt rosalega merkilegir
man ekkert hvað ég gerði í síðust viku. en fyrir akkurat viku held ég kom valdi að ná í mig og erlu og við tókum einn ís á þetta. eða þau, ég var of feit hehe og svo rúntuðum við bara eitthvað á birkitrénu.

á föstudaginn var bara skóli og ég og sólrún fórum svo uppí kringlu að verlsa mat fyrir chiquita kvöldið. fórum svo þaðan til olgu lilju og erla var þar og við elduðum fahitas eða hvað sem þetta heitir og svo ís með marssósu og kaka og fleira í eftirmat. oog svo vorum ég og olga lilja bara eitthvað að flippa með nærbuxurnar hans garra og eitthvað haha. en ég fór svo bara heim að gera ekkert

á laugardaginn gerði ég voða lítið nema ju fór eitthvað til sólrúnar að chilla bara og hún kom svo til mín seinna um kvöldið. við vorum bara eitthvað að hanga og síðan komu benni, alli og jói í heimsókn. þeir voru eitthvað að hlusta á erlu spila á píanóið, benni hafði víst kjaftað í strákana og þeir voru allveg dolfallnir hehe. svo vorum við bara eitthvað að hanga. diddi og kristján komu svo að ná í mig og sólrúnu aðeins seinna og við fórum heim til didda þar sem voru nóri, hjördís, beta og eitthvað bónus fólk. svo tókum við stelpurnar og diddi einn rúnt og fórum svo í smá stund aftur til didda og svo bara heim.

á sunnudaginn gerði ég líka eginlega ekki neitt hehe ég er allgjör aumingi. en ég rölti til sólrúnar allavega og dísa var þar líka. diddi kom að ná í okkur og við fórum heim til hans þar sem nóri, binni og beta voru og við horfðum á night at the roxbury haha. en svo kom valdi krúsí að ná í mig og við skutluð sólrúnu heim og rúntuðum svo eitthvað bara.

svo er bara búin að vera frekar venjuleg skóla vika bara, á mánudaginn komu logi og diddi um kvöldið og horfðum á sjónvarpið bara og sólrún kom svo. svo man ég ekkert hvað ég gerði hina dagana, bara læra, horfa á sjónvarpið og hanga eitthvað. fór með sólrúnu í kringluna á þriðjudaginn jú. og svo gerði ég ekkert í gær held ég.

anna mín átti afmæli 28.nóvember til hamingju með daginn elskan ;**

en í dag fórum við í 10.bekk og einhverjir aðrir skólar uppí borgarleikhús að hlusta á leikara eða höfunda lesa uppúr einhverjum bækum. flestir að drepast úr leiðindum, nema þegar jón gnarr var haha sumir voru farnir að grenja. en svo á morgun eru engir tímar útaf 1.des, verður bara eitthvað föndur og svo íþróttadagur eftir hádegi og eitt próf. een svo veit ég ekkert hvað ég geri um helgina ?

í den
erum við að tala um harðar gellur eða ?

Hulda Franklín

image

 


» 35 hafa sagt sína skoðun

25.11.2006 22:57:32 / chiquita

Chiquitakvöld Föstudag 24nóv

 
Myndablogg !

 


Kvöldmaturinn..

sætusætu systkini 0

Hulda og Erla að njóta matarins!

niice 0

Hulda - OlgaLilja - Erla - Sólrún 
thheart.gif Chiquita thheart.gif
 
 
Ekkert blogg strax.. koma myndir fljótlega0 !

» 3 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 23:48:50 / erla

BASS GIRL









sæta par !
Haaaalllóóó sko erum við að tala um celeb eða :D!!! ójáá bráðum verður Olga Lilja Chiquita mær eða öllu heldur BASS GIRL alltof kúl fyrir okkur ha.. en samt sem áður er ég nú voðalega stolt af henni ;*

» 3 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 23:20:03 / erla

hæjjjjj

 

 

City.jpg

/ Oh Sailor - Fiona Apple

Hvað er að gerast ! ég bara alltaf að blogga eða :D? stelpur geriði eitthvað í þessu !

Allavega þá var helgin bara fín hjá mér.
Á föstudaginn skutlaði Ívar bróðir Kristínar okkur á Prímadonnu í starfskynningu. Það var soltið spes.. spes kellingar og vissu ekkert hvað þær áttu að láta okkur gera ! en við hjálpuðum til og þvoðum á hvor annari hárið haha Kristín fékk smá bónus andlitsbað. En já settum svo í hvor aðra eitthvað dú.. krullur sem voru síðan ekki krullur og svo fékk ég eitthvað svaka túberingu hanakamba eitthvað haha. En já svo fór Kristín í ljós og ég að vinna. Svo kom ég heim og Hulda og Sólrún voru á tjillinu. Seinna kom svo Voldemort .. skutluðum Sólrúnu til Didda og Við fórum á rúntenn og svo var hent mér heim og Hulda fór til Didda og Valdi að vinna.

Á lordag labbaði ég í þessum skíítakulda í vinnuna. Enginn vildi vinna með mér ! ég hlít að vera svona rosalega leiðileg ! Bara slökkt á símunum sínum og allskonar. Þannig ég var ein í opnun og frekar mikið að gera og ekkert tilbúið og svona gaman gaman. En ég fékk nokkra hjálparmenn :haha: !. Eftir vinnu fór ég beint uppí kringlu með Olgu Lilju og Garra. Gúffuðum og ég keypti afmælisgjöf handa Önnu. Svo fór ég heim og Sólrún kom og svo Kristín og við gerðum okkur til og fórum í afmælisparty til Önnu Ragnhildar;* það var fínt nema mamma hennar böstaði þetta soltið snemma. En ég, Hildur, Dísa, Garri, Aníta, Leifur, Jölli, Olga Lilja man ekki alveg tókum taxa til Gumma í patey. Svo komu Hulda,Valdi,Sólrún,Diddi,Binni og Anna Fríða, Guðný, Hófí skvísur og fleira fólk man ekki hverjir fleiri voru þarna.. bara til að nefna einhverja :D. En já þetta var einsog hitt bara svona fínt party. Haha svo labbaði ég út þá var alltíeinu komin geðveikt mikill snjór og alles ! svo skutluðum við Sólrúnu Dögg heim og fórum heim til okkar og eg og Hulda vorum alveg að sofna þarna þannig Valdi greyið fór í vinnuna. Duglegur þessi maður !´

Jáá á sunnudaginn labbaði ég í snjónum sem náði mér uppað mitti haha litla ég í vinnuna ! Þetta var alveg rosalega ferskur dagur hjá mér ! byrjaði illa og lagaðist svo en svo fékk ég þennan ógeðslega höfuðverk og ældi og eitthvað en ég þraukaði þetta!. Eftir vinnu modte jeg Dísu út á leigu og við leigðum Tokyo Drift og ég keypti mér íísnál :D long tæm nó sí ! og fórum heim til mín að horfa.

Í dag fór ég í skólann í einn tíma og svo heim að sofa og svo fór ég í píanó og svo gerðist soltið skemmtilegt. Ég ákvað að labba heim og þetta er frekar langt ég var alveg að frjóóósa. En jámm ég var að labba yfir kringlumýra og það var rautt en ég ætla bara að drífa mig yfir .. prakkari ég veit. Svo á miðri göttunni renn ég beint á bossan og ligg þarna á götunni og bíll kemur en sér mig ekki og svo bara bííííb og ég stend upp að drepast í rófubeininu btw og spretti í burtu.. reyni það haha! í nokkrar sek hélt ég að ég yrði bara ekki eldri ! jááá góð saga :D.

En ég hef ekki meira að segja nema ég ætla bara að óska Anítu minni ynnilega til hamingju með afmælið <3:D og Gunna og Björgu:D
og svo Mímir á morgun til hamingju krúsí minn :D;***

Oct 21, 2006


-Frankie


ég og dísa ;*


tvillinger í sveitinni

» 3 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 23:19:06 / erla

16. nóvember

 
Hej alla ihoppa :haha:
mér leiðist ! og hvað gerir maður þá ! blogga það held ég nú.
Þessi vika er bara búin að vera ósköp venjuleg vika ! nenni nú varla að segja frá henni en það helsta var t.d. á þriðjudaginn labbaði ég í kuldanum í klippingu eftir skóla og labbaði ég upp í kringlu að hitta huldu, sólrúnu og dísu og svo skutlaði amma gella mér og sólrúnu í bakarameistarann austurveri :). Þar var Tekvöld fyrir starfskonur bakarameistarans. Heiðar snyrtir skemmti okkur og kenndi okkur alls konar dömu reglur og svona. Fengum auðvitað að snæða og svo komu nokkrar spákonur og voru að spá fyrir okkur ! ég náttúrulega varð að fara aftur eftir fyrsta skiptið ! frekar spúkí en samt gaman. Fékk sko að vita allskonar ! og flest var það nú gott :haha: .Fengum líka gjafapoka.. te og kökur og snyrtivörur svona krúttlegheit hehe :haha: . Jamm svo kom amma gella og skutlaði mér og sólrúnu dögg hjem.
Á miðvikudaginn var svo skrekkur og voru sumir alltof cool og mættu ekki. En annars var skrekkur fínn bara ! komust samt ekki áfram en mér fannst atriðið okkar vera mjög fínt bara :) þar sem við vorum ekki búin að sjá atriðið fullklárað. Eftir skrekk kom Valdes að sækja okkur huldu og það var farið heim í barmahlíðina góðu og tjillað þar einsog er nú oft gert.Í dag var það bara skóli til 12 og heim að sofa og borða, beiðhásen, shower power og sit hérna núna að blogga.
Enginn skóli hjá mér á morgun 8). Ég og Kristín Laufey erum að fara á Prímadonnu í starfskynningu ;). Svo veit ég ekki hvað ég geri um helgina ! Nema bara vinnaaa og afmæli hjá Önnu ! eitthvað meira í boði í þessum skítakulda ??.
Vanalega er jólafílingurinn kominn hjá mér núna en hann vill ekki koma alveg strax þannig ég bíð bara spennt :$:).
en ég hef ekkert að segja meira :D
ellerinn kveður.

 

» 7 hafa sagt sína skoðun

12.11.2006 03:03:40 / hulda

12.11.06


Til hamingju með 15 ára afmælið Raggi minn ;**


Þín frænka Hulda <3
blogga á morgun eða hinn
minni á www.blog.central.is/hfg

» 6 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 15:26:07 / erla

leiðiist

egeasgsstae.jpg

Ég hef eiginlega frá engu að segja.

leiðist bara svo mikið er veik heima og hef ekkert að gera :haha:..

En nú er vetrafríið á enda sem var nu ekkert spes er bara buin að vera að liggja i leti heima eða einhversstaðar annarstaðar. sem er samt fínt að taka svoleiðis einstaka sinnum :D.. en ég var semsagt að vinna um helgina.. þaað var agætt bara ! og svo var lika sofið og sofið.. maður verður stundum þreyttur á þessum morgunvöktum í vinnunni sko. Og já það var horft á myndir og jú kíkt í nokkur party og eitthvað týpískt bara :) fórum út að borða lika og slúðruðum alveg heilmikið ! þar fékk maður að vita ýmsa hluti  8|:!::cry:;) neeeei þetta var mjög gaman heho:lol: verðum að endurtaka þetta stelpur og næst verður Olga Lilja að koma með :) game ?

en afmælisbörn helgarinnar eru nokkur :D

ætli ég veiti þeim ekki smá athygli..

Heiðdís elskan 16 ára til hamingju sæta sæta ;***

190999796.jpg

Gunni minn 17 til hamingju ;**:D

Og svo Halldór sveitalubbi 15 til hamingju :**

En hvað er eiginlega málið með veðrið hérna á íslandi ! .. gaman að segja frá þvi þegar ég var að gera frostið í vinnunni og í gallanum og öllu.. kemur sólrún upp bara erla drullaðu þér niður sjáðu ! ég kem niður og hun hendir mer uti i storm og haglél og ég kemst ekkert inn aftur hahaha vandræðalegtjáá. en já ógeðsleg veður !

langar til útlanda í góða veðrið ! langar svo til tenerife :( .. öfunda þig valdi !!


sæta fólk haha :D

ensku gellurnar til í kjellinn haha


 

ekki væri ég til í að fá einn svona oná mig :S..

http://www.youtube.com/watch?v=Ft-Rb8MlD1c&mode=related&search =

ekki væri ég til í að fá einn svona oná mig :S..


en okei vá þetta blogg sýnir bara hvað mer leiðist mikið !!

bliller;*

efg2.jpg   

 

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

03.11.2006 18:13:25 / solrun

...

 

 
Langar soldið að skrifa hérna eitt lítið blogg þó ég hafi nú ekkert mekrilegt að segja!
Komin í vetrarfrí:D! Og hvað er hægt að gera betra í vetrarfríi heldur en að fara að vinna kl 7! Já takk fyrir, hélt það líka;)
Ég er semsakt búin að vera ofboðslega dugleg, vinna frá 7-15 í þessu blessaða bakaríi.. Bónusinn við að vinna í dag var sá að einhver læknir þurfti að koma að bólusetja alla sem voru að vinna þarna:$ og ég semsakt fékk eitt stykki sprautu í hendina! frekar furðulegt, ég var þarna í góðu chilli, í mínum eigin heimi að grilla aspasstykki og þessi maður kemur að mér með bakpoka á bakinu og segist vera kominn til að bólusetja alla starfsmenn sem væru að vinna, og ég hélt að hann væri bara eitthvað að bulla í mér til að byrja með.. en nei.. hann kom inn í bakaðstöðuna þar sem við erum oft að hanga og borða bakarí mat og setti helling af sprautum á borðið:S er ekki alveg að komast yfir það hvað þetta var furðulegt heh...
Núna loksins er komin helgi og frí á Mánudaginn og svo kemur skólinn! Það eina sem ég er búin að ákveða er að vinna á mrg frá 10-18 og svo á sunnudaginn frá 6-14 þannig þið vitið hvar þið getið fundið mig;)
 
Ætla að segja aðeins frá seinustu vikunni...
Á Sunnudaginn (seinustu helgi) kom Hulda til mín.. Lágum í mínu yndislega rúmi með popp+nammi+djús:D alveg bara ekkert smá kósí! Horfðum á Gauragangur í sveitinni og svo eftir hana Múlan2:P sofnuðum svo og vöknuðum í einhverju rugli bara... Mánudaginn kom Hulda líka til mín eftir skóla:D og við gerðum ræðu og borðuðum köku og fengum okkur mjólkurglas.. nema bara við nenntum ekki að klára ræðuna og fórum bara í Kringluna:$ Fór svo á æfingu um kvöldið og Kristín kíkti svo til mín eftir æfinguna:) Fór í einhverja kynningu uppí VR húsið á Þriðjudeginum og eftir hana fór ég uppí skóla og svo frá skólanum heim til mín með Andra og Jónasi þar sem við fengum okkur feitiu súkkulaðikökuna + mjólk:D.. Á Miðvikudeginum fékk ég útborgað:haha:, og hitti Dísu, Huldu og Erlu uppí kringlu og ég keypti mér sko peysu+bol+húfu+annan bol:) ..Um kvöldið fór ég í Bónus til að hitta Didda og þar voru líka Binni, Frikki og Beta.. var þar í smá stund og fór svo til Didda þar sem hann var nýbúinn að kaupa RISA sjónvarp fyrir 260þúsund kr8| alveg galinn náungi, jæja;) Á Fimmtudeginum hitti ég Guðlaugu:) og fór með henni í Bakaríið þar sem við keyptum okkur einhvern hollan mat, fórum svo til Þorgerðar þar sem við ætluðum að búa til disk til að hlusta á fyrir leikinn inní klefa en það klikkaði eitthvað:S.. Svo fórum við í Egilshöllina og unnum Fjölni 5-0 takk fyrir ;)
 
Núna er ég heima hjá Dísu og er búin að vera í svona klukku tíma með þetta blessaða blogg sem er að fara að klárast hjá mér;) Kom hingað þar sem Hulda og Erla voru líka og við fengum okkur súpu með núðlum ! Arnar Sveinn var að joina og ég veit ekki betur en að við séum að fara til Andra í kvöld og chilla þar ...
  
  

Picture50-1.jpg
*
Picture22.jpg
Sakna hennar einum of mikið:cry:!


» 13 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 14:31:43 / chiquita

stutt afmælisblogg;)

        Í dag á Steinunn Edda mín afmælii...orðin 16 ára..;)


sesprofil3.jpg





                 Til hamingju sætuust:haha::haha:;**;***

-OlgaLilja


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.10.2006 23:22:45 / hulda

hulda

Hææ

stelpur fariði að nú að blogga! annars geri ég það bara haha

en síðasta miðvikudag var hrollur í skólanum, undankeppnin fyrir skrekk! 9 undi bekkur tók þetta þrátt fyrir að flestum fannst 10. miklu betri, allavega var þetta snilld og mer fannst að þau hefðu átt að komast áfram. en svo var það bara rúntur með valda og erlu .. og skemmtilegar samræður sem við getum tekið uppá hehe!

 
á fimmtudaginn var frí í skólanum og fór í foreldraviðtal. gekk bara vel, fínar einkunnir og svoleiðis! svo fór ég í kringluna með dísu, hildi, rakeli og selmu og fórum á kaffi blue og eitthvað. Þegar ég kom heim var ásta komin til okkar og við tókum eitt myndaflipp eins og vanalega hehe. en við tókum því bara rólega um kvöldið svo
 
 
á föstudaginn fórum ég, erla, ásta og olga lilja í kringluna í smá stund og ég fór svo til sólrúnar. við höfðum það bara kósý og horfðum á home on the range og mulan 2 með popp og nammi hehehe, síðan fórum við heim til min og sólrún fór svo. ég var bara heima að chilla þangað til erla kom og við fórum að rúnta með didda. fórum svo í partý hjá viktor unnari og hitti þar fullt af fólki, það var bara fint. ég, erla, hófý, dagný? og diddi fórum svo í eitthvað chill hjá jack and jones gaurum en fórum svo fljótlega og hófý og dagný fóru að hitta kristínu þannig við rúntuðum bara og fórum svo heim til didda. diddi var svo allveg við það að sofna þannig ég og erla fengum lánaðar peysur hjá honum og röltuðum bara heim hehehe.
 
 
á laugardaginn fórum ég og erla í bakaríið að tala við andreu rún og sólrúnu. vorum þar heillengi bara! höfðum svo ekkert að gera þannig röltuðum bara i kringluna, haha alltaf þar! en komum við í bakaríinu á leiðinni heim aftur og vorum þar frekar lengi lika hehe. fórum svo til dísu að hanga bara og rúnar og bjarni komu svo. en ég og erla fórum svo heim og sólrún kom svo. seinna kom valdi og við fórum öll til önnu í smá stund og þar voru strákarnir og fleira fólk. en það var ekki stoppað þar lengi og fórum í partý hjá baldvin í graf. þar var margt um manninn og hittum fullt af fólki þar líka. en svo var gleðin búin
 á leiðinni úr partýinu vorum við svo óheppin að það var komin hálka á göturnar sem við einfaldlega vissum ekki, þannig við snérumst og uppá kannt og beint á ljósastaur! okkur brá ekkert lítið skal ég segja og allir i pinu sjokki fyrst.. ein aftari rúðan brotnaði öll og engin smá skráma á bílnum. erla greyið fékk meiri hlutann af rúðunni á sig sem skildi eftir sig ófáar skrámur á hendinni! en þetta var nu ekkert voða hrikalegt og hefði geta verið verra.
 við létum þetta ekkert á okkur hafa og kíktum aðeins fyrir utan partý í harmahverfi og stelpurnar náðu í pappír handa erlu til að þurrkablóðið hehe. skutluðum svo sólrúnu heim og svo fórum við bara heim líka.
 
. 
.
 
á sunnudaginn vaknaði ég bara frekar seint og tók því svo bara rólega um daginn og lærði pínu. svo kom pabbi um kvöldmataleitið að ná í mig og erlu og fórum í mat hjá þeim.
 
Fjóla Gerður litla sæta systir mín
 
Hulda Franklín
 
 
-

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 17:19:53 / hulda

23.10.06

Jæja, ég ætla að prófa að blogga hérna bara sjá hvað verður úr því hehe



En hvað segjiði stelpur, mig langar svoldið að byrja aftur með þessa.. er enginn til í það !?

  • allavega í síðustu viku var skólinn bara búinn að vera á fullu, ekki buin að vera að gera neitt annað eginlega nema skólann og læra, reyndar rúnta eitthvað smá með valda og sigga lár held ég en ekkert annað

    en síðasta fimmtudag var ball,  slöpp mæting samt en við gátum samt skemmt okkur hehehe. Það eru einmitt að detta inn myndir frá því

  • á föstudaginn vorum ég og erla bara að chilla heima að horfa á m.a. cheetah girls hahaha mest sorglegasta mynd sem ég hef á ævinni séð og miss conginiality 2. Þangað til valdi kom loksins og náði í okkur og við rúntuðum eitthvað og hittum eitthvað fólk. Síðan fórum við í partý í Hvassaleiti, allt troooðið maður gat varla labbað! allveg örugglega um 300 manns þarna hehehe. en svo kom auðvitað löggan eða popo eins og valdi vill segja það þannig við fórum bara og tókum einn rúnt og svo heim.

  • á laugardaginn fór ég með erlu í kringluna þegar hún var búin að vinna. sólrún, dísa og jónas komu svo til okkar um kvöldið og við fórum til arnars. Þar voru bara einhverjir af strákunum, hildur og anna frænka hennar og diddi kom svo. En ég og erla nenntum ekki að vera þarna þannig við fórum bara heim í chill og fann mer svo ekkert að gera.

  • á sunnudaginn var ég bara að læra og eitthvað. Um kvöldið fórum ég og erla til sólrúnar og þaðan í afmæli til Kristínar. Þar voru ég, kristín, erla, sólrún, guðlaug, anna m, andrea ýr, þorgerður, sigga og thelma. við stelpurnar vorum bara að slúðra og kjafta eins og við gerum best, borða feeeitann matt og horfa á she's the man hehe. Valdi og siggi komu svo og náðu í mig, erlu og sólrúnu. skutluðum sólrúnu heim og tókum rúnt á þetta. svo bara heim og hélt áfram að læra til 3 eða eitthvað

  • fór svo í skólann í dag daauðþreytt. Einar már guðmundsson höfundur englar alheimsins kom í skólann og hélt einhvern fyrirlestur, ég sofnaði næstum því svona 10 sinnum haha og svo var ég svo heppin að það voru einhver svaka þrek í leikfimi.

En eg veit ekki hvað er i gangi með þessar síður okkar, allavega held eg að eg se ekki beint að fíla nýju síðuna -krumpurnar_ en eg veit ekki. juju get svosem allveg verið með hana.

Nýjar myndir

  • Ball í Hlíðó 16.10.06
  • Ball í Hlíðó 2
  • Afmæli Kristínar 22.10.06
  • Afmæli Kristínar 2

 

Hulda Franklín*


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.10.2006 17:29:52 / solrun

Sólrún..

Lagar nú bara aðeins að segja nokkur orð...
Ég veit ekki hvort ég sé ennþá með þessa síðu, en þar sem /krumpurnar-/ er bilað eða bara hreinlega ónýt þá bara skelli ég einu bloggi hingað inn... En annars, hvað kom fyrir síðuna:S Sólrún er alls ekki sátt!!

Þessi vika er búin að vera alveg fáránlega óspennandi...
Mánudagurinn: Var veik:( Og mátti semsakt ekki gera neitt um daginn, en um kvöldið kíktu Jónas og Bjössi á mig.. hreinlega björguðu deginum fyrir mér;*:)
Þriðjudagur: Búin í skólanum kl 15:40 og kíkti til Arnars um kvöldið;*;)..
Miðvikudagur: Fór í skólann.. Svo fór ég með Erlu í baðhúsið, þar sem við hittum Orra og hann lét okkur gera einhverjar æfingar:lol::S Ekki alveg það sem við höfðum í huga, að fara að taka svona voða mikið á (fyndið hvernig við vorum þegar við vorum að fara úr húsinu Erla.. haha;)..) en þetta var nú samt ágætt;) Um kvöldið fór ég í suðurver og hitti Huldu mína;* við keyptum okkur slatta af nammi og fórum svo til mín, kíktum aðeins á lærdóminn fyrir íslenskuprófið og vorum svo bara hérna á chillinu:D...
Fimmtudagurinn: Var búin snemma í skólanum.. Fór heim, lærði, spilaði á píanó og fór svo í píanótíma! (dugleg já;).. Eftir píanótímann fór ég heim, klæddi mig í æfingaföt og hljóp með Dísu uppí kringlu þar sem við vorum að fara að horfa á Olgu Lilju dansa eða sýna tískusýningu kl 19! En það seinkaði eitthvað svo við hlupum bara á æfingu;) Fáránlega langt síðan ég hef verið á æfingu:S:D Fyrsta æfingin mín á tímabilinu ;)...
Föstudagur: Fór með Huldu í kringluna eftir skólann.. biðum eftir Dísu og Hildi í svona hálftíma þar sem við ætluðum að kaupa sameiginlega gjöf handa Binna, en nei þær beiluðu og ég og hulda keyptum voða fínt bindi sem var frá okkur og Erlu;).. svo fór ég til Huldu og Erlu og við gerðum okkur til og fórum í afmælið til Binna:D;*.. Mjög fínt afmæli,  takk fyrir mig Binni minn:haha:;) mikið af krökkum þar og bara skemmtun þar á bæ, nenni ekki að segja meira frá því núna... Að lokum fór ég bara heim að sofa ;)
Í dag: vaknaði ég, fékk mér að borða og horfði á einhverja teiknimynd á stöð2+ :P Fór svo með litlu sys út í fótbolta í góða veðrinu heh;).. Og svo var farið að vera svo leiðinlegt veður að við fórum inn og fengum okkur ristað brauð og kakó :D

Veit ekki hvað ég geri í kvöld, en á morgun er ég að fara í Leikhús með systkinum mínum.. veit samt ekki hvað ég er að fara að sjá, en allt í lagi með það:) svo verð ég að vera ofboðslega dugleg að læra því að næsta vika verður bara LÆRDÓMUR-RITGERÐIIR út í eitt :whut: !!

  • Myndir frá Opna húsinu
  • Fleiri myndir væntanlegar?


*Hulda mín og ég <3:D*




» 27 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Klukkan